Teitur Magnússon - Sumargestur
Fuglinn minn úr fjarska ber
fögnuð vorsins handa mér.
Yfir höfin ægi-breið
ævinlega – flýgur rétta leið.
Tyllir sér á græna grein
gott að hvíla lúin bein
ómar söngur hjartahlýr
hlusta ég á – lífsins ævintýr.
Fús ég þakka fuglinn minn
fyrir gleði-boðskapinn
þessa ljúfu tæru tóna - tóna.
Þegar haustar aftur að
af einlægni ég bið um það
að mega syngja sönginn þinn
sumargestur – litli fuglinn minn.
Fús ég þakka fuglinn minn
fyrir gleði-boðskapinn
þessa ljúfu tæru tóna - tóna.
Þú átt athvarf innst í sál
ó að ég kynni fuglamál
skyldi ég lag á lúftgítarinn prjóna.
Written by:
Asgeir Trausti Einarsson, Einar Georg Einarsson, Gudmundur Kristinn Jonsson
Publisher:
Lyrics © Kobalt Music Publishing Ltd.
Lyrics powered by Lyric Find